Mat á umhverfisáhrifum?

Þetta er magnað. Skyldi þetta ekki hafa verið fyrirsjáanlegt? Kom það kannski fram í mati á umhverfisáhrifum? Ég þykist fylgjast nokkuð vel með yfirleitt en man ekki til að hafa heyrt eða lesið um yfirvofandi náttúruspjöll af þessu tagi. Svo er verið að tala um vistvæna orku ...


mbl.is Gróður drepst vegna mengunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er búin að skrifa nokkr pistla um þetta á blogginu mínu, Hlynur.
Lestu t.d. þennan, þennan og þennan til dæmis.
Eins og þú sérð þá er þetta ekki aðeins spurning um að eitra fyrir náttúrunni heldur líka mannfólkinu. Taktu eftir að í fyrsta pistlinum sem ég vísa í kemur fram að losun brennisteinsvetnis í iðnaði er mest frá olíuhreinsistöðvum. Arnarfjörður?

Hlustaðu svo á nokkur Spegilsviðtöl í tónspilaranum hjá mér - ég nefni t.d. viðtöl við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun, Sigurð Þór Sigurðarson, lækni og sérfræðing í öndunar- og atvinnusjúkdómum og Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði. Allir þessir sérfræðingar vara við brennisteinsvetni og þá einkum fyrir mannfólkið. Þetta er eitur sem lamar öndunarfærin í miklu magni og það er allsendis órannsakað hvaða áhrif það getur haft á okkur í svona miklu magni og miklu návígi.

Eins og ég segi einhvers staðar í skrifum mínum: Það er verið að eitra fyrir okkur.

Það er búið að hamra á því að jarðhitavirkjanir séu hreinar og endurnýjanlegar en það er einfaldlega ekki satt - ekki eins og staðið er að þeim og hve mikið er fyrirhugað að virkja.

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.9.2008 kl. 14:48

2 identicon

Þakka þér fyrir, Lára Hanna. Það er ljóst að ég fylgist ekki eins vel með og ég held stundum sjálfur ...

Hlynur Þór Magnússon (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband