31.3.2007
Fagnaðarfundir þessa heims og annars
Hundurinn Dexter fagnar mér líkt og fótboltamaður marki þegar ég kem heim. Þvílík læti! Þvílíkur fögnuður! Munurinn er sá, að enginn fékk á sig mark og þess vegna er enginn vonsvikinn. Kötturinn Helga Guðrún Geirdal gleðst líka en á langtum hófsamari hátt. Eitthvað svipað og þegar forsetinn rís úr sæti og klappar fyrir marki í landsleik.
Ég má til að vekja athygli á ljósmyndabloggi sem ég rakst á núna áðan. Aldeilis frábærar myndir! Ekki þekki ég höfundinn, sem heitir Halldór Sigurðsson. Þarna getur m.a. að líta mynd af kirkjustaðnum forna og nýja Mosfelli í Mosfellssveit. Í garðinum á Mosfelli höfum við heima verið jörðuð í marga mannsaldra. Þar verða líka fagnaðarfundir öðru hverju.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Og svo það sé á hreinu nefndi ég Dexter eftir vísindamanninum unga sem birtist reglulega í barnasjónvarpinu, en ekki sálarlausa morðingjanum sem nýverið voru gerðir þættir um.
erlahlyns.blogspot.com, 1.4.2007 kl. 16:34
stórgóðar myndir, takk fyrir ábendinguna http://www.flickr.com/photos/elements ef þú hefur gaman af myndum þá langar mig að benda þér á þessa slóð, þetta eru myndir sem dóttir mín (áhugaljósm) hefur tekið hér heima og í London
Ásdís Sigurðardóttir, 1.4.2007 kl. 16:44
Bestu þakkir, Ásdís!
Hlynur Þór Magnússon, 1.4.2007 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.