Fćrsluflokkur: Bloggar

Sjálfstćđisflokkur og Samfylking ...

... í dag - á morgun ...

Geir og Ingibjörg I.

Geir og Ingibjörg II.


Evróvisjón vatn á myllu VG

Mér finnst gaman ađ fylgjast međ kosningabaráttunni. Helst ađ ég vildi fá meira af skođanakönnunum. Stundum líđa margir klukkutímar á milli. Ţađ er alveg ótćkt.

 

Auglýsingar og áróđursbrögđ flokkanna eru eitt skemmtiefniđ. Geir Haarde skuggalaus í glađasólskini eins og Sćmundur fróđi eftir samskiptin viđ kölska. Grćni framsóknarkallinn fer afturábak og stoppar. Glitnir gerir rauđa Samfylkingarpunktinn ađ sínum. Allt ađ tveggja ára fangelsis krafist yfir Ómari Ragnarssyni fyrir störf gegn íslenskri náttúru. Auglýsingastofa Frjálslynda flokksins setur glćsilegt Íslandsmet í stafsetningarvillum.

               

Ţannig mćtti lengi telja.

           

Og svo er ţađ Evróvisjón.

          

Margir eru gramir, reiđir og sárir vegna úrslitanna í undankeppni Evróvisjón í gćrkvöldi. Ţeir sem af einhverjum ástćđum eru gramir, reiđir og sárir eru líklegri til ađ kjósa stjórnarandstöđuna hverju sinni. Ţeir sem eru gramir, reiđir og sárir eru líklegir til ađ kjósa Vinstri grćna, vegna ţess ađ sćkjast sér um líkir. Snúum sókn í vörn!

             

Og svo er ţađ veđriđ.

             

Gott veđur á kjördag veit á gott hjá sitjandi stjórnarflokkum hverju sinni. Sólskin og fuglasöngur létta lundina. Hvergi skuggi, a.m.k. ekki ţar sem forsćtisráđherrann er. Fólk er ánćgđara og jákvćđara en ella. Og tengir ţetta ósjálfrátt viđ ríkisstjórnina. Einföld ómeđvituđ tengsl. Eins og milli rauđu Glitnispunktanna og Samfylkingarpunktanna. Ţeir sem vilja áfram gott veđur og ekkert stopp kjósa Geir Haarde eđa Ţorgerđi Katrínu eđa Árnasettiđ. Jafnvel skattleysismörkin og kjör ţeirra sem minnst mega sín gleymast í sólskininu.

 

En ef ţađ springur á leiđinni á kjörstađ eđa löggan sektar mann, ţá dregur ský fyrir sólu í sálinni og stjórnarandstađan fitnar.

 

Gleđilegar kosningar!

 

Indriđi H. Ţorláksson kominn á bloggiđ

Mér ţykir nokkrum tíđindum sćta - og varla er ég einn um slíkt - ađ sjálfur Indriđi H. Ţorláksson skuli vera kominn hingađ á bloggiđ ...

 

Í inngangsorđum segir Indriđi:

                  

„Fyrir nokkru samdi ég 3 greinar um skattamál. Tilefniđ var gegndarlausar yfirlýsingar og loforđ um skattalćkkanir, sem ađ mínu mati eru blekkingar. Fyrsta greinin birtist í Mbl sem ađsend grein sl. mánudag. Síđari greinarnar hafa ekki birst, sem líklega stafar af ţví ađ annađ ađsent efni hefur forgang. Vera kann ađ efni síđari greinanna komi einhverjum ađ gagni til ađ átta sig á innihaldsleysi ţeirra gyllibođa um skattalćkkanir, sama frá hvađa flokki er, sem eiga eftir ađ dynja yfir á síđustu dögum kosningabaráttunnar. Afréđ ég ţví ađ nota ţessa miđlunarleiđ til ađ koma ţeim á framfćri.“


Kosningabaráttan er lýjandi ...

Plakataupplímingarmađur

       

... víđar en á Íslandi. Pása hjá plakataupplímingarmanni í Nígeríu.

  Svipmynd frá St. Andrews 

P.s.: Bretarnir láta ekki dálitla rigningu aftra sér frá ţví ađ fara hinn daglega hring á golfvellinum ...

 

Hornsteinar og krosstré - í bođi mbl.is

Eiginlega finnst mér hálfundarlegt ađ blogga hér í bođi mbl.is og nota svo vettvanginn til ađ drulla yfir fyrirtćkiđ og starfsfólk ţess. Nánast eins og ađ vera í kvöldverđarbođi og lýsa frati á matinn og gestgjafana. Hér er ég einkum ađ hugsa um síđustu fćrslu mína, en hún snýr ađ ţeim sem annast fréttaskrifin á mbl.is.

 

Ţađ liggur viđ ađ ég iđrist ţessara ummćla vegna ţess hve stórkarlaleg og lítilsvirđandi ţau eru. Engu ađ síđur lćt ég ţau standa. Mér ţykja vinnubrögđin viđ fréttaskrifin á mbl.is iđulega fyrir neđan allar hellur. Mér skilst ađ ég sé ekki einn um ţađ viđhorf. Ađ vísu er ég ekki vanur ađ spyrja ađra hvađ mér finnst.

 

Ef ég sći einhvern misţyrma hestinum mínum - reyndar á ég ekki hest - ţá yrđi ég reiđur. En ţó ađ ég eigi ekki hest, ţá á ég hlutdeild í íslenskri tungu. Ţannig er a.m.k. tilfinningin. Og ţegar ţeir stóru og öflugu misţyrma henni, ţá sárnar mér.

 

Ţeir stóru og öflugu eru fjölmiđlarnir. Ţegar viđ ţetta bćtist ađ mér ţykir vćnt um tiltekna fjölmiđla, ţá sárnar mér tvöfalt, ef ţannig mćtti ađ orđi komast. Ţegar krosstrén bregđast, eđa ţannig.

 

Ég geri alveg sérstakar kröfur til Ríkisútvarpsins og Morgunblađsins. Mér ţykir vćnt um ţessar stofnanir, ţessa hornsteina íslenskrar menningar - já, ég leyfi mér ađ kalla Morgunblađiđ bćđi stofnun og hornstein íslenskrar menningar! - og mér sárnar alveg sérstaklega ţegar ţessir miđlar eđa afleggjarar ţeirra misstíga sig.

 

En, og ţá vísa ég til ţess sem fyrr var sagt:

 

Ef ummćli eru lítilsvirđandi en jafnframt ómakleg, ţá hitta ţau einungis ţann fyrir sem hefur ţau í frammi. Ef stóryrđi mín eru ómakleg, ţá eru ţau einungis lítilsvirđandi fyrir mig sjálfan.

 

Jeg ţakka ţeim sem hlýddu. Góđar stundir!

 

Fréttavaktin farin ađ lesa Moggablogg!

Batnandi manni er best ađ lifa. Nćst á dagskránni hjá starfsfólki mbl.is er ađ lćra íslensku. Svo er ađ lćra undirstöđuatriđin í fréttaskrifum. Ţar kemur m.a. til sögunnar nákvćmni, sem sennilega er fremur eđlislćg en tillćrđ. Ţá kemur ađ námi í öđrum tungumálum, svo sem ensku. Loks er listin ađ geta snúiđ útlendum texta á skiljanlega íslensku.

 

Spurningin er hins vegar ţessi: Hvers vegna rćđur mbl.is ekki til starfa fólk sem hefur ţessa undirstöđu á valdi sínu?

          

Og: Hvers vegna er nánast hver einasta frétt á mbl.is meira og minna brengluđ, illskiljanleg eđa óskiljanleg? Auk ţess á einhverju hrognamáli sem hvorki er kennt né kynnt í íslenskum skólum?

           

Hvers vegna ţarf Morgunblađiđ endilega ađ fara niđur á planiđ hjá einhverjum öđrum? Er ţađ rétt ađ veriđ sé ađ spara? Er ţađ rétt, ađ í sparnađarskyni sé notast viđ áhugasama grunnskólakrakka í tímabundinni starfskynningu?

           

07.05.2007 Ţegar bloggarar skúbba ...

 
mbl.is Eftirminnileg bílferđ hjá Birgi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Pólitískt hvísl úr helgum steini

Yfirleitt hef ég skilgreint sjálfan mig sem ţverpólitískan. Ég hef aldrei getađ séđ „minn flokk“ sem algóđan og hina flokkana sem alvonda. Aldrei hef ég flett upp í stefnuskrá Flokksins eđa rćđum Formannsins til ađ gá hvađa skođanir ég ćtti ađ hafa. Ekki hef ég reynt ađ verja ţađ sem mér hefur stundum ţótt afleitt hjá Flokknum eđa fulltrúum hans.

  

Í Sjálfstćđisflokknum hef ég um ţessar mundir féritigi bollokađ árin, svo ég leyfi mér ađ nota gamalkunnugt orđalag. Fyrsta Landsfundinn minn sat ég áriđ 1969. Ţađ var á Hótel Sögu og enginn amađist viđ ţeirri ráđstefnu! Ţegar ég lít til baka, ţá eru mér á ţeim fundi minnisstćđastir menn sem eru löngu horfnir úr flokknum, ţeir Óli Ţ. Guđbjartsson og Sverrir Hermannsson.

           

Áriđ eftir fyrsta Landsfundinn (ef ég man rétt) sat ég ţing Sambands ungra sjálfstćđismanna á Akureyri. Bjó á bindindishótelinu Varđborg ásamt mörgum öđrum í ţeim hópi. Alla tíđ síđan hefur hugtakiđ bindindishótel skipađ ákveđinn sess í huga mínum.

                

Eftir ađ ég settist ađ á Ísafirđi haustiđ 1985 lenti ég fljótlega í félagsstarfi međ sjálfstćđisfólki á norđanverđum Vestfjörđum. Ţar kynntist ég strax ýmsum sem ég leyfi mér ađ telja til vina minna enn í dag. Burtséđ frá allri pólitík. Nefni bara Einar Kristin, Einar Odd, Guđjón Arnar, Guđmund Marinósson, Georg og Lóu, Kristmann, Ólaf Helga ...

              

Núna sit ég í helgum steini fjarri allri pólitík og fjarri öllu kosningastarfi. Svolítiđ skrítin tilfinning eftir alla ţessa áratugi.

  

Ég hef veriđ dálítiđ tvíátta eđa jafnvel margátta hvađa flokk ég ćtti ađ kjósa ađ ţessu sinni. Ef ég ćtti ţá yfirleitt ađ vera ađ kjósa. Hvađ mig varđar er framtíđin ađ baki.

                             

– – –              

                       

Klausurnar hér ađ ofan eru lausabrot úr greinarkorni sem ég skrifađi í morgun á vef gamals vinar míns, Einars Kristins Guđfinnssonar. Ég kann ekki viđ ađ birta ţađ allt hér heldur leyfi ég mér ađ vísa ţangađ ef einhver skyldi vilja lesa ţetta í heild - Sundurlaus minningabrot og hugleiđingar um pólitík. Ţar kemur m.a. fram, sem einhverjum ţykir líklega tíđindum sćta ţegar ég er annars vegar, ađ hefđi ég kosningarétt í Reykjavíkurkjördćmi norđur, ţá myndi ég kjósa Framsóknarflokkinn.  

                             

P.s.: Tók í gćr Bifrastarprófiđ sem naumast verđur ţverfótađ fyrir á bloggvefjum ţessa dagana. Niđurstađan hjá mér var eins og viđ mátti búast - afskaplega ţverpólitískur ...

 

Ţegar bloggarar skúbba ...

Fyrir rúmum mánuđi sagđi Steingrímur Sćvarr Ólafsson (Denni) frá ţví á Vísisblogginu, ađ Dorrit Moussaieff forsetafrú hefđi slasast í skíđaferđalagi í Bandaríkjunum. Bloggiđ var birt kl. 14.52 en frétt um máliđ birtist ekki fyrr en kl. 16.27 á visir.is. Frétt af slysinu birtist kl. 15.29 á mbl.is. Visir.is sagđi í frétt sinni ađ upplýsingar um máliđ hefđu fyrst komiđ fram á bloggi Steingríms.

 

Núna má lesa á mbl.is athyglisverđa frétt um ţjófnađ á veisluföngum og fleiru og handtöku glćpagengis frá Austur-Evrópu fyrir nokkrum dögum. Vitnađ er í frétt í Ríkisútvarpinu í dag.

 

Eins og fleiri hafa bent á, ţá greindi einn af eđalbloggurunum hér á Moggabloggi ítarlega frá ţessu í fyrradag (!) og vakti mikla athygli sem von var. Nema hjá blađamönnum og fréttamönnum sem virđast ekki fylgjast međ öđru en fréttatilkynningum frá stofnunum og birtingu fréttatilkynninga frá stofnunum hjá öđrum fréttaveitum.

             

(Innskot síđar: Nei, ţetta síđasta var dálítiđ ósanngjarnt eđa rúmlega ţađ).

          

Ekki er vitnađ í fyrstu heimildina ađ ţessu sinni eins og í dćmi Denna.

                    

Eru bloggarar smátt og smátt ađ taka viđ vaktinni af hinum hefđbundnu fréttaveitum?

             

Vćri e.t.v. rétt ađ fréttaveiturnar hefđu mannskap á bloggvakt?


mbl.is Erlent glćpagengi stal fiskveislu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fegrunarađgerđir?

Hvađ felst eiginlega í hugtakinu fegrunarađgerđ, sem notađ er í ţessari frétt? Hér er talađ í einni runu um ađgerđir á augnlokum, brjóstastćkkanir, svuntuađgerđir, fitusog og andlitslyftingar, en ţetta eru algengustu ađgerđirnar hjá tilteknum hópi lýtalćkna skv. tilvitnađri frétt á mbl.is.

 

Eru ţessar ađgerđir á augnlokum eingöngu til fegrunar? Oft eru fellingar á augnlokum fjarlćgđar hjá rosknu eđa öldruđu fólki vegna ţess ađ ţćr lafa niđur og eru til óţćginda. Ţá er ekki veriđ ađ hugsa um fegurđina heldur gagnsemi augnanna og líđan fólksins. Eru slíkar ađgerđir á augnlokum ekki í ţessari samantekt?

 

Og hvađ međ brjóstaminnkanir sem gerđar eru vegna ţess ađ ţyngd brjóstanna veldur verulegum óţćgindum, svo sem ţrálátri vöđvabólgu? Teljast ţćr til fegrunarađgerđa?

 

En varđandi brjóstastćkkanir – hvort silíkonfótboltar í brjóstum teljast fegrandi er líklega smekksatriđi. Hér er ekki veriđ ađ tala um ađgerđir til lagfćringar vegna líkamlegra sjúkdóma eđa slysa.

 

Fegurđin er líklega bćđi einstaklingsbundin og tískubundin skynjun.

 

Eru fegrunarađgerđir kostađar ađ einhverju leyti af almannatryggingum? Ítrekun: Hér er ekki veriđ ađ tala um ađgerđir til lagfćringar vegna líkamlegra sjúkdóma eđa slysa. Ef svo er, sem ég veit ekkert um, vćri ţá ekki nćr ađ senda fólkiđ til sálfrćđings eđa geđlćknis?

 

Bara velti ţessu fyrir mér af ţví ađ ég veit ekki neitt ...


mbl.is Rúmlega níu hundruđ fegrunarađgerđir
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jónína Benediktsdóttir og reikult ţangiđ í Morgunblađinu

Jónína Benediktsdóttir kvartar á bloggi sínu yfir „fjandans ţvćlingi“ hjá Mogganum. „Endalausar breytingar á stađsetningu efnisins og ekki nokkur leiđ ađ finna ýmislegt sem átt hefur sér fasta síđu síđan á fyrri hluta síđustu aldar“, segir hún.

 

Eins og út úr mínu hjarta talađ!

              

Skáldiđ sá ţetta fyrir:

                     

Reikult er rótlaust ţangiđ,         

rekst ţađ um víđan sjá,         

straumar og votir vindar           

velkja ţví til og frá.         

                      

Ţarna er auđvitađ átt viđ efnisţćttina sem flćmast fram og aftur í Mogganum. Hinn „víđi sjár“ er Morgunblađiđ en „votir vindar“ eru nýmóđinsöflin á ritstjórninni.

        

Ţegar ég var upp á mitt besta á fyrri hluta síđustu aldar var hćgt ađ ganga ađ hlutunum vísum í Morgunblađinu. Allt er í heiminum hverfult sagđi Jónas en ţađ gilti ekki um Moggann.

 

Ekki fyrr en núna.

              

Eins og kunnugt er, ţá standa núna yfir tímar sem nefndir eru „ţessir síđustu og verstu tímar“. Einkenni ţeirra eru lausung og lygi, skeggöld og skálmöld og allt ţađ; hverfa af himni heiđar stjörnur.

               

Finnast ćsir                

á Iđavelli             

og um moldţinur           

máttkan dćma             

og minnast ţar              

á Morgunblađiđ                 

og á Fimbultýs            

fornar rúnar.         

           

            

Ég tek heilshugar undir eftirfarandi orđ Jónínu Benediktsdóttur:

            

Moggafólk, hćttiđ nú ađ pirra okkur međ ţessum breytingum.

 

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband