Færsluflokkur: Lífstíll
25.4.2007
Ætli þakið leki?
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs hefur keypt sér þriggja herbergja íbúð í New York, ef marka skal mbl.is. Auk þess er hér um þakíbúð að ræða, eins og það er kallað. Ef fjárhæðum í fréttinni er snúið lauslega úr dollurum í krónur, þá er kaupverðið um 650 milljónir, ásett verð liðlega milljarður, afsláttur um 400 milljónir og hússjóðurinn vel yfir milljón á mánuði. Dagblaðið New York Post er tilgreint sem heimild fyrir þessu.
Ef frétt New York Post á vefnum er lesin, þá kemur fram, að hér er um duplex penthouse að ræða, nánar tiltekið the top two floors in the luxury "condop" building. Þar er þess reyndar ekki getið, að fjölmiðlaherbergið svokallaða sé íburðarmikið, eins og sagt er í frétt mbl.is.
Ekki kemur fram hvers vegna Jón Ásgeir fékk svona góðan afslátt.
Jón Ásgeir keypti sér íbúð í New York fyrir 10 milljónir dollara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)