Umræðan um fyrirhugaða klámkaupstefnu hérlendis og klámmyndatökur í íslenskri náttúru í tengslum við hana rifjar upp heimsókn klámstjörnu að nafni Kyla Cole og tökuliðs til Vestfjarða fyrir tveimur árum. Meðan á tökum stóð dvaldist hópurinn á Hótel Djúpavík og á Laugarhóli í Bjarnarfirði. Gamla síldarverksmiðjan á Djúpavík, sem á sínum tíma var vettvangurinn í Blóðrauðu sólarlagi Hrafns Gunnlaugssonar, varð nú sviðsmynd enn metnaðarfyllri verka. Heiti potturinn við sundlaugina á Laugarhóli bar nafngiftina heitur pottur með rentu - hafi hann ekki gert það fyrr. Á sínum tíma var greint frá þessu á fréttavefjunum strandir.is og bb.is og síðan eitthvað á landsvísu, ef ég man rétt.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Geimfrú: Klámbókmenntagerð á Íslandi - hvort heldur er í máli eða myndum - er engin nýlunda. Leyfi mér að minna á t.d. Völsa þátt og Bósa sögu.
Hlynur Þór Magnússon, 18.2.2007 kl. 12:53
Ég bendi líka á nýlega frumsýningu á verkum Gúnda í Byrginu. Markhópur hans er þó væntanlega (og vonandi) þrengri en Kylu Cole.
Jón Steinar Ragnarsson, 19.2.2007 kl. 01:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.