24.7.2007
Ljósmynd af ljósmyndara á Moggabloggi
Kjartan Pétur Sigurðsson ljósmyndari og bloggari á Moggabloggi lenti hér á Reykhólum í kvöld og tók bensín í Jónsbúð. Ég leyfði mér að taka ljósmynd af ljósmyndaranum þegar hann fékk einhvern stimplunarpassa eða hvað það nú er hjá Jóni kaupmanni. Kjartan flýgur á fisi og var að koma frá Ísafirði á leið suður.
Þeir voru sex félagarnir á sex flugvélum sem lentu hér núna í kvöld - eða fimm flugvélum og einu fisi - en fjórir þeirra komu hér við á leiðinni vestur fyrir hádegið í dag. Hópurinn var í sunnudagsbíltúr (eða þannig) á þriðjudegi og skrapp til Ísafjarðar að fá sér að borða hjá meistarakokknum Magnúsi Haukssyni í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað. Þeir urðu ekki fyrir vonbrigðum með rauðsprettuna hjá Magga og Rönku sögðu þeir. Kannski hefur sjálfur Halldór Hermannsson skötufræðingur og Rönkupabbi verið að hjálpa tengdasyninum í kokkeríinu. Magnús er samt alveg sjálfbjarga á þeim vettvangi og rúmlega það hefur mér fundist.
Meira á bb.is á morgun. Ég vona að Kjartan hafi ekki tekið myndir af mér. Til vara að þær verði ekki birtar.
> bb.is 24.07.07 Á leið í hádegismat á Ísafirði
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:51 | Facebook
Athugasemdir
Maggi og Ránka skólasystir mín eru gúrme kokkar á heimsvísu. Það er í eina skiptið, sem mér hefur fundist að ég fengi ekki að borga nóg fyrir matinn, þegar ég borða hjá þeim. Vona að þau lesi þetta. Verðlagið er til háborinnar skammar hjá þeim. Þá meina ég allt allt of lágt.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.7.2007 kl. 23:11
Sæll Hlynur og takk fyrir síðast,
Þessi ferð okkar um Vestfirðina í gær var hreint út sagt æði í alla staði.
Ferðin byrjaði nú ekki vel og spáin fyrir svæðið leit ekki vel út fyrir flug.
Nóttina fyrir ferðina þá var ákveðið að taka norðurstrandirnar í stað þess að byrja á Barðaströndinni.
En sterkur vindur með skýjum var samkvæmt spá að koma yfir Strandirnar að norðan verðu.
Stefna var tekin á Hólmavík og leit flugið ekki vel út um kl. 8 þegar við ætluðum að reyna að komast yfir Holtavörðuheiðina.
Ég náði að fljúga á mótordreka TF-133 (fis með þyngdartilfærslu) "On Top" yfir skýjum og fannst ég sjá fjöll á Norðurströndunum. En svo reyndist ekki vera og fann ég að lokum gat niður rétt norðan við Búðardal.
Fór þar niður og flaug í átt að Saurbæ í Dölum og þá sá ég að fjöllin á Barðaströndinni voru öll auð. Flaug á Króksfjarðarnes og lenti þar og tók bensín og lét hina vita hvaða leið væri fær leið norður.
Fljótlega komu Jónas og Árni á sínu fisi (3ja ása fis) og lentu líka á veginum við Króksfjarðarnes og var dyttað af ýmsu á meðan beðið var eftir restinni sem voru 4 önnur fis sem biðu á flugvellinum á Stóra Kroppi og síðan á Stykkishólmi. Og komu svo að lokum á Reykhóla og síðan beint flug á Ísafjörð.
Á meðan flugum við Árni, Jónas og ég á Flateyri þar sem Árni átti pantað 10 kg af harðfisk á Vestfirska vísu. Þaðan héldum við svo út fjörðinn yfir Súgandafjörð, Bolungarvík, Hnífsdal og lentum á Ísafirði þar sem Egill Hjartar svifdrekaflugmaður m.m. tók á móti okkur og skutlaði okkur í rauðsprettu á veitingastaðnum Tjöruhúsið í Neðstakaupstað.
Stuttu seinna komu svo hin 4 fisin líka og hópurinn sameinaðist.
Það gerðist margt í þessari ferð sem gaman er að segja frá. Lengri ferðasaga kemur svo seinna á moggablogginu ásamt myndum sem verið er að vinna í þessa stundina :)
Kjartan
p.s. fis er flygildi sem er að hámarki 450 kg.
Kjartan Pétur Sigurðsson, 25.7.2007 kl. 10:28
Aðeins að blanda mér í þetta. Var á Ísafirði fyrir viku og borðaði í Tjöruhúsinu, það var hrein upplifun að koma þangað, ekki bara vegna matarins heldur líka húsins sem er frá kringum 1780. Maturinn var æði og sætaskipan bíður upp á að kynnast fólki sem er skemmtileg viðbót á ferðalag. Ég kynntist tvennum hjónum frá Vestmanneyjum.
Edda Agnarsdóttir, 25.7.2007 kl. 10:49
Þetta var frábær ferð. Maður kemst að því að lífið á landsbyggðinni er með allt öðrum hraða en í borginni. Allir tilbúnir að aðstoða og leiðbeina. Takk fyrr matarsódann, slöngubúta, kaffi, verkjatöflur akstur á Tjöruhúsið o.fl o.fl.
Að sjá Vestfirðina úr lofti í góðu veðri er engu líkt. Látrabjargið er ótrúlegt og ekki síður allir selirnir á Rauðasandi sem litu út eins og hornsíli, þeir voru svo margir á sundi í ósnum.
Jonas Sverrisson (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 14:07
Sæll aftur,
Hér koma svo linkar úr ferðinni frá því í gær á Vestfirðina.
Með bestu kveðju Kjartan
Borgarnes http://www.photo.is/07/07/4/
Hvítá http://www.photo.is/07/07/4/
Bifröst, Grábrók, Holtavörðuheiði http://www.photo.is/07/07/4/index_2.html
Króksfjarðarnes http://www.photo.is/07/07/4/index_3.html
Reykhólasveit http://www.photo.is/07/07/4/index_4.html
Reykhólar http://www.photo.is/07/07/4/index_5.html
Þorskafjörður, Djúpifjörður, Gufufjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_5.html
Ísafjarðardjúp, Hestur http://www.photo.is/07/07/4/index_6.html
Flateyri http://www.photo.is/07/07/4/index_8.html
Suðureyri http://www.photo.is/07/07/4/index_11.html
Súgandafjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_11.html
Bolafjall Radarstöð http://www.photo.is/07/07/4/index_12.html
Bolungarvík http://www.photo.is/07/07/4/index_13.html
Óshlíð http://www.photo.is/07/07/4/index_13.html
Hnífsdalur http://www.photo.is/07/07/4/index_14.html
Ísafjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_14.html
Ísafjarðarflugvöllur http://www.photo.is/07/07/4/index_15.html
Safnið og Tjöruhúsið Neðstakaupstað http://www.photo.is/07/07/4/index_16.html
Flottir vindlar frá Tjöruhúsinu og Rauðspretta http://www.photo.is/07/07/4/index_17.html
Súðavík http://www.photo.is/07/07/4/index_18.html
Álftafjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_19.html
Vigur http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Seyðisfjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Hestur http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Hestfjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Dýrafjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Dynjandi http://www.photo.is/07/07/4/index_20.html
Bíldudalur http://www.photo.is/07/07/4/index_22.html
Tálknafjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_22.html
Patreksfjörður http://www.photo.is/07/07/4/index_23.html
Örlygshöfn http://www.photo.is/07/07/4/index_24.html
Breiðavík http://www.photo.is/07/07/4/index_26.html
Látrabjarg http://www.photo.is/07/07/4/index_26.html
Rauðisandur http://www.photo.is/07/07/4/index_27.html
Stórbóndi á Rauðasandi http://www.photo.is/07/07/4/index_28.html
Selir á Rauðasandi http://www.photo.is/07/07/4/index_29.html
Stálfjall http://www.photo.is/07/07/4/index_31.html
Reiðskörð, Rauðdalsskörð http://www.photo.is/07/07/4/index_33.html
Reykhólar http://www.photo.is/07/07/4/index_35.html
Hlynur Þór Magnússon og Jón kaupmaður í Jónsbúð http://www.photo.is/07/07/4/pages/kps07071397.html
Einnig má sjá myndir af Barðaströndinni hér þar sem flogið var Í Flókalund með varahluti um miðja nótt:
Reykhólar http://www.photo.is/123/index_2.html
Berufjörður http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20557.html
Miðhús http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20555.html
Fellsströnd http://www.photo.is/snae/index_27.html
Staðarfell SÁÁ http://www.photo.is/sveit/pages/KPS03946.html
Staðarhólskirkja http://www.photo.is/sveit/pages/KPS03963.html
Gilsfjörður http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20618.html
Króksfjarðarnes http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20614.html
Tindar http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20607.html + http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20606.html
Borgarland Borg http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20579.html + http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20587.html
Hríshóll Klukkufell http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20580.html + http://www.photo.is/123/pages/kps0604%20583.html
Flóabáturinn Baldur http://www.photo.is/06/09/3/index_9.html
Gert að gæs á Rauðasandi http://www.photo.is/06/09/3/index_7.html
Hnjóti í Örlygshöfn http://www.photo.is/06/09/3/index_5.html
Breiðavík, Keflavík, Látrabjarg http://www.photo.is/06/09/3/index_3.html
Gæsaveiðiferð Vestfirðir 20 gæsir og 1 refur http://www.photo.is/06/09/3/
Kjartan Pétur Sigurðsson, 25.7.2007 kl. 15:51
Fréttin af þessu er komin inn á bb.is - Fisvélaferðin um Vestfirði var engu lík
Hlynur Þór Magnússon, 25.7.2007 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.