Gaman að borgin skuli hyggja á fjárfestingar. Hér vísa ég til fréttarinnar sem tengt er við hér að neðan. Spyrja mætti í framhaldi af þessu hver eigi það hús Menntaskólans í Reykjavík sem hann er oftast tengdur við þessi árin. Er það í eigu Reykjavíkurborgar eða skyldi borgin kaupa brunarústirnar þegar þar að kemur?
Timburkumbaldinn mikli í brekkunni ofan við Lækinn hefur um nokkurt skeið verið bækistöð menntastofnunar, sem margir kannast við. Skóli þessi var settur á fót í Skálholti laust eftir miðja 11. öld en var fluttur þaðan undir lok 18. aldar. Hann hefur verið á ýmsum stöðum og borið ýmis nöfn. Lengst af hefur verið vel gert við hann í húsnæðismálum, allt eftir efnum og ástæðum á hverjum tíma, nema þá helst í seinni tíð.
Einhverju sinni og á einhverjum stað rakti ég sögu skóla þessa í hálfa níundu öld í mjög stórum dráttum. Sjálfur var ég þar nemandi í fjóra vetur ekki alls fyrir löngu og lauk þar svokölluðu stúdentsprófi vorið 1966. Gott ef ég lagði svo ekki eitthvað til málanna á Wikipedíu varðandi skólann.
Hvenær verður skóli þessi hafinn til virðingar á nýjan leik? Eru einhverjar hugmyndir um enn einn flutning hans, hugmyndir um gott húsnæði sem sæmir menntastofnun samkvæmt kröfum líðandi stundar? Eða - ætti að rífa timburkumbaldann og byggja almennilegt hús á sama stað? Eða - á að láta ruslið brenna einn góðan veðurdag og byggja í staðinn nútímalegt hús sem skemmir samt ekki að ráði heildarmyndina við Lækinn?
Fyrir fáum árum, fyrir kannski fimmtán-tuttugu árum eða svo, kom ég til Reykjavíkur og labbaði um miðbæinn og fornar slóðir í Vesturbænum þar sem ég átti heima. Ég gekk í kringum Menntaskólahúsið og tók í húninn bakdyramegin. Það var opið. Ég fór inn í gömlu kennslustofuna mína. Þar var taflan ennþá og krítin. Ég skrifaði á töfluna eitthvað á latínu. Man ekki lengur hvað það var. Kannski eins gott.
Reykjavíkurborg vill kaupa hús sem urðu eldi að bráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:05 | Facebook
Athugasemdir
Hús menntaskólans í Reykjavík er fallegt,reisulegt timburhús,sem setur mikinn svip á miðborgina.Stjórnarráðshúsið svolítið norðar stendur í skugga þess.
Samkvæmt minni orðabók er kumbaldi: "hreysi, lágreist hús, lítið skakkt hús". Ekkert af þessu á við um hús MR
Eiður Svanberg Guðnason, 21.4.2007 kl. 14:17
Ágæti Eiður: Þeir sem þekkja mig einna skást - fáir þekkja mig vel, vona ég - kannast við kuldalegt háð, þversagnir og þverstæður sem frá mér koma ...
Hlynur Þór Magnússon, 21.4.2007 kl. 14:25
Íhaldsemi í húsnæðismálum skólans skýrir kannski útungun íhaldsmanna úr þessum útungunarkassa. Húsið er jú fallegt og aldin reisn yfir því, en þarna ætti frekar að vera upplýsingaþjónusta fyrir túrhesta fremur en skóli fyrir tréhesta.
Jón Steinar Ragnarsson, 21.4.2007 kl. 15:17
Þú ert ekki innifalinn í þessari skvettu að sjálfsögðu. Það verða alltaf að vera unndantekningar til að sanna regluna.
Jón Steinar Ragnarsson, 21.4.2007 kl. 15:18
Þegar ég var í MR var gamla KFUM og K húsið kallað Casa Christi, veit ekki betur en það standi enn.
Vaka (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 17:12
Góð áminning! Quae nocent, docent.
Júlíus Valsson, 21.4.2007 kl. 18:03
Brennum bara helvítis kofann! Byggjum svo glæsilegt og nýtískulegt hóruhús á rústunum!
Sigurður Þór Guðjónsson, 21.4.2007 kl. 18:46
Eða lacrima Christi.
Hlynur Þór Magnússon, 22.4.2007 kl. 06:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.