22.4.2007
Ævisaga mín
Ég var að gramsa í drasli, þar á meðal misgömlu ljóðaveseni. Ljóðin mín eldast illa eins og ég sjálfur. Ætti ég að bera á þau hrukkukrem?
Ævisaga mín
Einu sinni var lítill drengur.
Svo leið og beið og ekkert gerðist.
Allt í einu leit hann á klukkuna.
En þá var það orðið of seint.
Ljóð nr. 000043
Gaman þegar við Dagur og Steinar fengum okkur aðeins í glas og vorum skáld.
Dagur teiknaði.
Steinar hugsaði.
Ég hlustaði.
Svo var hringt á Borgarbíl.
Ljóð nr. 000121
Því heimskulegri sem textinn er
þeim mun brýnna að stafsetningin sé í lagi.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Ljóð | Breytt s.d. kl. 11:49 | Facebook
Athugasemdir
Takk, Anna frænka. Ég hef líka séð verri ljóð á prenti. T.d. það sem birtist eftir mig í Morgunblaðinu öðru hverju fyrir fjórum áratugum eða þar um bil.
Hlynur Þór Magnússon, 22.4.2007 kl. 07:22
Ágæt ljóð Hlynur. Sérstaklega ævisagan.
Þorsteinn Sverrisson, 22.4.2007 kl. 09:49
Hef ekkert vit á ljóðum en segi eins og frúin - hrukkukrem eru out. Hrukkur eru krúttlegar.
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 22.4.2007 kl. 11:30
Sumir leyna á sér segi ég nú bara.
Vilborg Traustadóttir, 22.4.2007 kl. 13:33
Segir allt sem segja þarf. Stafsetningin þarf ekki að vera í lagi þarna.
Jón Steinar Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 13:39
Klukkuljóðið er ansi gott. Erum við ekki jafnaldrara? Nú bíðum við bara. En sem betur fer verður biðin ekki löng.
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.4.2007 kl. 18:55
Ævisagan algjör snilld
Ágúst Dalkvist, 22.4.2007 kl. 23:05
Ljóðin þín eru bara góð og ég skal segja þér obinbert leyndarmál, hrukkukrem eru gagnlaus svo það er óþarfi að nota þau. Eitt veit ég fyrir víst að við ráðum við höfum völdin.
villtu eldast illa þá gerist það
villtu vera ungur í alla staði þá gerist það.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.4.2007 kl. 19:18
Bestu þakkir fyrir vinsamleg orð. Kannski pára ég eitthvað á næstunni um ljóðagerðarsögu mína; hún er að vísu ekki stór partur af ævisögunni.
Sigurður Þór: Jú, við erum nánast jafnaldra, skakkar liðlega hálfu ári. Sá er munurinn, að ég er á sjötugsaldri en þú ert einungis á sextugsaldri. Þess batnar þér ...
Hlynur Þór Magnússon, 23.4.2007 kl. 21:49
Þegar ég birti hér ljóðin mín, þá dettur aðsóknin að blogginu mínu niður. En ég hef það auðvitað í bakhendinni að tengja tvær-þrjár einnar setningar færslur við fréttir á mbl.is af stöðumælasekt sem Paris Hilton fær eða augnaráði Símonar Cowley - þá rýkur þetta í hæstu hæðir. Búinn að prófa slíkt!
Hlynur Þór Magnússon, 23.4.2007 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.