Stólpípur ...

Leiðirnar til að hafa peninga af fólki eru óteljandi. Nýjasta leiðin er gegnum stólpípu, eins og fram kom í Kastljósinu áðan. Áður hefur þjóðin komist í kynni við t.d. Bramadropa, segularmbönd, miðilsfundi, Kína-lífs-elexír, frumópið, blómadropa, scientology, blóðkoppa, jesúlæti og ótalmargt fleira sem allt á að lækna. Sumt af þessu er að vísu fallið úr tísku.

 

Í besta falli er þetta skaðlaust fyrir líkama og sál. Skaðinn getur hins vegar falist í því, að ekki er leitað lækninga við meinsemdum heldur treyst á skottulæknana.

 

Leiðin að hjarta mannsins liggur í gegnum magann, var einu sinni sagt. Í Kastljósinu var fjallað um nýtt tilbrigði við þetta gamla stef: Leiðin að buddu náungans liggur í gegnum rassgatið.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hægt að kaupa ódýr tól og gera þetta heima hjá sér.

Miða við hversu mikið við látum  plata okkur í eyðslu á óhollum matvörum þá er sjálfsagt að koma til móts við það t.d. 1x á ári með því að fara í detox :) 

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 20:22

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

...svo ekki sé minnst á "hvíttun" á fyrrnefndum stað

Heiða B. Heiðars, 24.1.2007 kl. 21:30

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Nú leikur stólpípan stærstan þátt í lífi Jónínu.Hugmyndarík hugsjónakona kona sem ætlar að hjálpa heimsbyggðinni að losa sig við síðbúinn saur.Hvílík kynning fyrir íslenska útrás.

Kristján Pétursson, 25.1.2007 kl. 00:31

4 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Gleymdi Herbalife.

Hlynur Þór Magnússon, 25.1.2007 kl. 00:51

5 Smámynd: Þorvarður Ragnar Hálfdanarson

Heilbrigð sál í hreinum ristli...

Þorvarður Ragnar Hálfdanarson, 25.1.2007 kl. 02:43

6 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Þú spyrð, Geimfrú. Varðandi Bramadropa: „Um miðja nítjándu öld hófst mikið framfaraskeið í flestum vísindum. Segja má að þá verði læknisfræði nútímans til. Þekking á allri líkamsstarfsemi jókst og vonir kviknuðu um að brátt mundi takast að vinna bug á flestum sjúkdómum og mannanna meinum. Hómópatar nutu góðs af þeirri bjartsýni sem ríkti og meðul þeirra voru síst talin lakari en þau sem fengust í apótekum. Samhliða jókst svo áhugi fólks á alls konar lyfjum sem áttu að vera allra meina bót: Kína-lífs-elexír, Volta kross og Brahma voru allsherjarmeðul sem margir töldu að dygðu gegn flestum kvillum. Þess má geta að Kína-lífs-elexír var framleiddur á Seyðisfirði á fyrstu árum tuttugustu aldarinnar (Smári Geirsson, 1989, bls. 140–164).“ (Skýrsla heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á Íslandi, 131. löggjafarþing 2004-2005). Varðandi frumópið: Gúgglaðu Primal Scream (ekki hljómsveitin!) eða Primal Therapy, hlýtur að finna það. Blóðkoppar: Sogskálar settar á hörundið til að draga út meinsemdina.

Hlynur Þór Magnússon, 25.1.2007 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband