Nagli í líkkistuna - nú frá Marel

Fræg er yfirlýsing Þorsteins Más Baldvinssonar þegar Samherji yfirtók flaggskip ísfirskrar útgerðar: Guggan verður áfram gul og verður gerð út frá Ísafirði. Þau koma í hugann enn á ný nú þegar Marel fer með allt sitt frá Ísafirði. Sá er þó munurinn, að Marel býður starfsfólkinu á Ísafirði að flytja bara suður og halda áfram að vinna hjá fyrirtækinu þar.

 

Fyrirtækið Póls á Ísafirði var eitt af þeim sem Ísfirðingar höfðu mestar mætur á. Hreinlega stoltir af. Marel, helsti samkeppnisaðilinn, fyrirtæki með rætur í Sambandsveldinu gamla (og nýja), yfirtók Póls fyrir fáum árum. Þá voru uppi yfirlýsingar af sama tagi og varðandi Gugguna - yfirlýsingar gegn betri vitund, gefnar til að sefa í bili þá sem höfðu af þessu áhyggjur.

 

Líkkista atvinnulífs á Vestfjörðum er að verða fullsmíðuð.

                                   

Grétar Pétursson segir tíðindin af lokun Marels hafa áhrif á fleiri en starfsmenn fyrirtækisins og fjölskyldur þeirra; þau slái líka á móralinn í bænum almennt. Hann segist ekki sjá það í fljótu bragði hvað starfsmenn taki sér fyrir hendur þegar yfir lýkur hjá fyrirtækinu. „Hjá fyrirtækinu starfa margir ungir menn sem eru að byggja sér heimili á Ísafirði. Það er ekki gott að segja hvað menn munu gera.“ Grétar segist ekki spenntur fyrir þeirri tilhugsun að flytjast búferlum á höfuðborgarsvæðið og vinna hjá starfsstöð fyrirtækisins í Garðabæ. „Ég bý í ljómandi góðu einbýlishúsi hér á Ísafirði, að selja það og eiga varla fyrir kjallaraholu í höfuðborginni í staðinn finnst mér ekki spennandi.“  

bb.is

P.s.: Einmitt á þessari stundu er Kristján Þór Júlíusson að tjá sig í fréttum Ríkisútvarpsins - fyrrum bæjarstjóri á Ísafirði og stjórnarmaður í Samherja, núverandi bæjarstjóri á Akureyri, eða hvort hann er nýhættur af vissum ástæðum þvert ofan í fyrri yfirlýsingar - um nauðsyn þess að hafa tiltekna þjónustu úti á landi ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Úti á landi fyrir þessum Nýðhögg er bara Akureyri. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2007 kl. 19:50

2 Smámynd: Katrín

Líkkistan er fullbúin myndi ég segja.  Á bara eftir að auglýsa útförina.

Katrín, 23.2.2007 kl. 21:01

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svona er fyrirtækjafasisminn, sem við köllum "frjálshyggju". Nú kemur í ljós hverra frelsi um var rætt.  Þetta mun einnig birtast í stærra samhengi, þar sem erlend stóriðja getur tekið sig upp og farið, henti það arðsemisáætlunum.  Svo geta þeir líka ráðið orkuverði og gjöldum á sig í skjóli þessarar ógnar.   Straumsvíkurútþenslan er vægt dæmi um hug þeirra. Hér er gamla Aronskan í annari birtingarmynd.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.2.2007 kl. 22:10

4 Smámynd: Hafsteinn Gunnarsson

Ekki finnst mér nú  í lagi að líkja Ísafirði og því heiðursfólki sem þar býr við lík-kistu. Hingað til hefur fólk frá þessum slóðum haft bæði meiri metnað og getu en það.

Ekki finnst mér heldur í lagi að skammast yfir Marel í þessu sambandi, ef menn eru eitthvað ósáttir við endalok Póls þá væri nær að tala við þá menn sem ákváðu að selja það í burtu, því yfirleitt þegar eitthvað er selt í burtu, fer það í burtu, ekki satt? 

Hafsteinn Gunnarsson, 24.2.2007 kl. 12:13

5 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Hafsteinn: Hér var enginn að líkja Ísafirði og fólki þar við líkkistu. Hér var verið að tala um líkkistu atvinnulífs á Vestfjörðum - sú myndlíking er alþekkt og margnotuð og væntanlega flestum kunn.

Hlynur Þór Magnússon, 24.2.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband