Tíminn líður við innanverðan Breiðafjörð

Hér á Reykhólum er logn og vorblíða. Jörðin auð en fjallahringurinn hvítur, hólmarnir svartir, sjórinn blár, ég hægri grænn. Rjúpur á vappi fyrir utan, kötturinn spenntur. Hundurinn hvarf að heiman í gær; tík í grennd. Þeir eru að gera við gluggana í kirkjunni.

 

Fyrir sunnan er verið að pexa út af þjóðsöngnum. Við Matti frændi brosum.

 

Á morgun er afmælisdagurinn hennar mömmu. Hún fæddist hér við Djúpafjörðinn. Þá var Hannes Hafstein ennþá Íslandsráðherra. Þremur dögum seinna tók Björn úr Djúpadal við.

 

Svona líður tíminn við Breiðafjörð.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Dásemd Breiðafjarðar efar enginn. Samgleðst þér að dvelja þarna í ró og næði, án svifryks, nagladekkjaumræðu, þjóðsöngsrifrildis eða umferðar. Stefni sjálfur á að koma mér af mölinni í sæluna við Breiðafjörð áður en langt um líður og hef sett stefnuna á Flatey. Verð samt að kanna fyrst hvort nettenging sé á staðnum

Halldór Egill Guðnason, 27.3.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér á Siglufirði ríkir kyrrðin ein ofar öllu.  Ekki heyrist einusinni í varginum, né kúar æður við fjöruborð.  Það er tímanna tákn.  Vonandi verður þrátt um þjóðsönginn og ekkiklám til þess að breyta þessu.  Mér er það þó til efs.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.3.2007 kl. 14:34

3 Smámynd: erlahlyns.blogspot.com

Ég kem vonandi bráðlega til þín í friðsæld og fegurð.

erlahlyns.blogspot.com, 27.3.2007 kl. 17:19

4 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Enn er hér glaðasólskin, logn, vor, nánast alger kyrrð - friðinn rjúfa einungis fuglar himins og jarðar, lands og sjávar. Og hundurinn sem vill að við förum í labbitúr.

Hlynur Þór Magnússon, 28.3.2007 kl. 13:38

5 Smámynd: erlahlyns.blogspot.com

Ég sakna hundsins! Sá íslenskan blending á Akureyri fyrr í dag og mér varð nánast illt af söknuði

erlahlyns.blogspot.com, 28.3.2007 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband