Fćrsluflokkur: Menning og listir

líkţorn, slabbdregill, firđtal, slembiúrtak, legslímuflakk, njálgur, páka

Leitin ađ ljótasta orđi íslenskrar tungu: Hátt í sextíu fćrslur eru komnar í athugasemdadálkinn og tillögur um fjölmörg afar frambćrileg orđ. Ţar má nefna (án ţess ađ ég taki afstöđu ađ sinni) orđin slembiúrtak, búkur, legslímuflakk, líkţorn, drulla, blogg, ristruflanir, togleđurshólkur, afturúrkreistingur, legremburotta, áriđill, náriđill, ţúsöld, raggeit, njálgur, spartltúba, kunta, firđtal, héddna, rasssćri, slabbdregill, páka, afgjaldskvađarverđmćti, nýsigögn, hortittur, ćla ...

 

Eflaust leynast enn margir gimsteinar ljótleikans glóandi í málhaugnum okkar ylhýra, ástkćra. Viđ finnum örugglega margt fleira ljótt ef viđ leitum í sálarfylgsninu. Söfnum áfram tillögum fram yfir helgi og förum svo ađ skilja sauđina frá höfrunum, láta renna undan rjómanum, slíta upp ljótasta illgresiđ og hnýta saman í vönd ...

 

Nokkrir hafa tilnefnt Framsóknarflokkinn. Ţađ er út af fyrir sig skiljanlegt en ég efast um ađ rétt sé ađ hafa sérnöfn í ţessari samkeppni. Framsóknarmenn hafa báđir haft samband viđ mig og látiđ í ljós óánćgju sína. Hins vegar kćmi orđiđ framsóknarmađur (eđa sjálfstćđismađur, eđa einfaldlega stjórnmálamađur) e.t.v. til greina viđ úthlutun sérstakra heiđursverđlauna, líkt og í Óskarnum.

 

Hugsiđ ykkur allt ţetta hráefni í ljótasta ljóđ íslenskrar tungu!

 

Svo fć ég líklega viđurkenningu (eđa verđskuldađa refsingu) fyrir ljótustu bloggfyrirsögn ţúsaldarinnar.

 

> 20.07.2007   Ný samkeppni: Ljótasta orđ íslenskrar tungu

 

Menningin og markađslögmálin

Gaman vćri ađ vita hvort nokkur vildi gefa út bćkurnar um Harry Potter ef ţćr vćru bođnar međ sambćrilegum hćtti. Einhvern veginn efast ég um ţađ. Hvađ ţá Biblíuna.

 

En ef rithöfundurinn Joanne K. Rowling kćmi nú međ handrit ađ Biblíunni til forleggjara, eđa Símaskránni, ţá myndi hann gleypa viđ ţví á stundinni.

 

Svona er nú ţađ.

 
mbl.is Breskir útgefendur sáu ekki í gegnum hrokafullan ritstuld
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Náttúrugripasafniđ í eigu og umsjá ríkisins í 60 ár ...

Hiđ íslenska náttúrufrćđifélag (stofnađ 1889) rak náttúrugripasafn á tímabilinu frá 1890 til 1947, en ţá afhenti félagiđ ríkinu safniđ ađ gjöf ásamt byggingarsjóđi. Ţetta stórmerka vísindasafn lá á ţeim tíma undir skemmdum vegna húsnćđisvandrćđa. Félagiđ leitađi til ríkisstjórnarinnar eftir styrk til ţess ađ bćta úr ţessum vanda, en bauđ safniđ ađ gjöf ađ öđrum kosti, í trausti ţess ađ vel yrđi ađ ţví búiđ, og hefđi ţá ríkiđ allan veg og vanda af rekstri ţess framvegis. Ríkisstjórnin tók síđari kostinn og hefur nú annast safniđ af miklum myndarskap ć síđan, eđa a.m.k ţeim myndarskap sem flestir munu kannast viđ.

 

Í Morgunblađinu fyrir réttum 60 árum, hinn 6. mars 1947, er greint frá ţessum merku tímamótum í sögu safnsins og rćtt viđ dr. Finn Guđmundsson náttúrufrćđing (mynd: Tímarit.is).

 

Morgunblađiđ 6. mars 1947

Ísafjörđur: Viđ skál síđan fyrir jól

Slétt silfurplata er hömruđ á steđja - dögum saman, vikum saman. Reyndar er hún ekki lengur slétt; viđ fyrsta högg byrjar hún ađ taka á sig mynd. Nákvćmlega ţar sem platan nemur viđ steđjann ţarf hamarinn ađ hitta. Viđ ţađ ţenst silfriđ og ţéttist. Međ kerfisbundinni nákvćmni, međ tilfinningu fyrir efninu, og međ óbilandi ţolinmćđi, er hćgt ađ gefa silfrinu form á ţennan einfalda en ákaflega seinlega hátt. Viđ hömrun harđnar silfriđ og hćttir ađ láta ađ stjórn. Svo ađ silfriđ rifni ekki ţarf ađ glóđhita ţađ. Ţá verđur ţađ aftur mjúkt. Og áfram er haldiđ ađ hamra. Pétur Tryggvi Hjálmarsson silfursmiđur á Ísafirđi hefur veriđ ađ hamra eina plötu síđan fyrir jól - í meira en tvo mánuđi. Platan verđur smátt og smátt ađ einhverju. Platan og mađurinn eigast viđ. Ţegar vel gengur verđur hún listaverk; mađurinn listamađur. Skál! 

                  

Pétur Tryggvi - Skál 01

           

Pétur Tryggvi - Skál 02

                  

Pétur Tryggvi - Skál 03

                

Pétur Tryggvi - Skál 04

                

Pétur Tryggvi - Skál 05

30.12.2006 Pétur Tryggvi - bćjarlistamađur Ísafjarđarbćjar


Ólafur Elíasson - mikilvćgari í listasögunni en Rembrandt? Undarleg frétt ...

Listamađurinn Ólafur Elíasson er einn af 11 ţýđingarmestu listamönnum samtímans, og í 22. sćti yfir alla listamenn sögunnar, ef marka má heimasíđuna artfacts.net, en undanfarin ár hafa listar yfir efstu 100 listamennina veriđ birtir á síđunni. Ólafur er fyrir ofan fjölmarga af helstu listamönnum sögunnar, til dćmis Salvador Dalí, Jackson Pollock, Paul Gauguin og Vincent Van Gogh. Matthew Barney er í 43. sćti yfir ţýđingarmestu núlifandi listamennina.

 

Ofanrituđ frétt birtist á mbl.is fyrir viku. Punktur. Í fyrirsögninni var enginn fyrirvari: Mikilvćgari en Van Gogh.

                                     

OlafurEliassonEitthvađ klórađi ég mér í hausnum yfir ţessari frétt; velti lítillega fyrir mér viđ hvađ vćri eiginlega miđađ en nennti ekki ađ skođa ţađ nánar. Auđvitađ er fréttin ekki fullburđa nema fram komi viđ hvađ er átt, viđ hvađ er miđađ, og mađur á ekki ađ ţurfa ađ grafast fyrir um ţađ annars stađar. Ađ hvađa leyti er hann fyrir ofan t.d. Dalí og Gauguin og Vincent van Gogh? Liggur ekki beinast viđ ađ skilja ţetta sem svo, ađ Ólafur sé meiri og merkilegri í listasögunni en ţeir?

 

Núna rakst ég á eftirfarandi á spjallvefnum malefnin.com eftir málverjann caramba og leyfi mér ađ smella ţví hér inn (niđurlagsorđin um Matthew Barney eru líka ţađan en ekki frá mér):

 

Mogginn vitnar í artfacts.net máli sínu til stuđnings um ađ Ólafur sé ţýđingarmeiri en Van Gogh, de Kooning, Chagall, Monet o.s.frv. Hann hlýtur líka samkv. ţessu ađ vera ţýđingarmeiri en bćđi Rembrandt og Da Vinci ţví ţeir eru hvorugur á 100 nafna listanum hjá artfacts.net. Andy Warhol hlýtur ađ vera ţýđingarmesti listamađur allra tíma ţví hann er nr. 1 á listanum.

 

VanGogh_1887_SelbstbildnisŢetta er auđvitađ fjarstćđa og ber enn eina ferđina vitni fáfrćđi og heimóttarskap íslenskra blađamanna. Listinn á artfacts.net er stigagjöf fyrir sýningarsögu listamanna og verđmćti ţeirra frá sjónarmiđi listaverkasala. Fleiri áhorfendur koma á sýningu á verkum Warhols en t.d. Chagalls. Ţýđir ţađ ađ Warhol sé „ţýđingarmeiri“ listamađur en Chagall frá almennu listrćnu og sögulegu sjónarmiđi? Stigagjöfin er útskýrđ á artfacts.net:

                                  

The aim of the Artist.Ranking (A.R) system is to arrange artists by their exhibition history. The A.R evaluates exhibitions held on an international level over the last five years. The basis of the A.R thinking is the so-called economy of attention (after a book from Georg Franck). Franck says that attention (fame) in the cultural world is an economy that works with the same mechanisms as capitalism. Capitalist, or economic, behaviour is based on property, lending money and charging interest. For Franck, the curator (e.g. the museum director or the gallery owner) acts as a financial investor. The curator/investor lends their property (their exhibition space and their fame) to an artist from whom they expect a return on their investment in the form of more attention (reputation, fame etc). 

Therefore, the relationship between gallery owner and artist relates to that between investor and entrepreneur. The investor puts his money into companies from which he expects to gain rewards. This is always a mixed batch, where a few succeed and pay for the misinvestment in the others.

                                             

Mogginn sér ástćđu til ađ nefna ađ Matthew Barney sé nr. 43 á listanum. Barney er heimsfrćgur fyrir meltingarfćra- og endaţarmslist sína og var auk ţess unnusti Bjarkar ţegar síđast fréttist. Ţarna er tengingin viđ land og ţjóđ. Ţetta sá Mogginn, alltaf glúrinn!

 

Klámmyndatökur á Vestfjörđum - Kyla Cole á Laugarhóli

Umrćđan um fyrirhugađa klámkaupstefnu hérlendis og klámmyndatökur í íslenskri náttúru í tengslum viđ hana rifjar upp heimsókn klámstjörnu ađ nafni Kyla Cole og tökuliđs til Vestfjarđa fyrir tveimur árum. Međan á tökum stóđ dvaldist hópurinn á Hótel Djúpavík og á Laugarhóli í Bjarnarfirđi. Gamla síldarverksmiđjan á Djúpavík, sem á sínum tíma var vettvangurinn í Blóđrauđu sólarlagi Hrafns Gunnlaugssonar, varđ nú sviđsmynd enn metnađarfyllri verka. Heiti potturinn viđ sundlaugina á Laugarhóli bar nafngiftina „heitur“ pottur međ rentu - hafi hann ekki gert ţađ fyrr. Á sínum tíma var greint frá ţessu á fréttavefjunum strandir.is og bb.is og síđan eitthvađ á landsvísu, ef ég man rétt.

 

Listamannalaun: Falleinkunn í ritgerđarsmíđi ...

Gísli Halldór Halldórsson forseti bćjarstjórnar sćmir Pétur Tryggva nafnbótinni Bćjarlistamađur Ísafjarđarbćjar.„Eins og kunnugt er fékk ég synjun viđ síđustu úthlutun starfslauna. Ég man ekki nákvćmlega hvernig synjunin var rökstudd, en mig minnir ađ ţađ hafi veriđ vegna ţess ađ greinargerđin um ţađ sem ég hafđi á prjónunum hafi ekki veriđ nógu orđmörg, ekki nógu margar línur eđa ekki nógu margar blađsíđur. Vera má ađ svo fari líka núna. Gallinn er sá, ađ mér er lífsins ómögulegt ađ skrifa langt mál um listaverk sem ég á eftir ađ hanna og smíđa. Ég hygg aftur á móti ađ ég hafi sýnt fram á ţađ á liđnum árum og áratugum, ađ ég skapa silfurverk sem ţykja nokkurs virđi.“ 

Ţannig kemst Pétur Tryggvi Hjálmarsson silfurlistamađur ađ orđi í greinargerđ međ umsókn sinni til stjórnar listamannalauna fyrr í vetur.

 

Í ţar til gerđum reit í umsókninni sjálfri - „stutt og hnitmiđuđ lýsing á verkefni/verkefnum sem fyrirhugađ er ađ vinna ađ á starfslaunatímanum“ - segir hann:

                              

 „Hönnun og smíđi stórra silfurverka. Slík verk eru vaxtarbroddurinn í list minni ţessi árin. Eins og fram kemur í međfylgjandi greinargerđ er mér lífsins ómögulegt ađ skrifa um ţetta langa ritgerđ, jafnvel ţó ađ reynslan ćtti ađ hafa kennt mér ađ falleinkunn í ritgerđarsmíđi geti orđiđ til ţess ađ mér verđi synjađ um styrk til listsköpunar á vettvangi silfursmíđi.“

Hvađ sem ţessu líđur, og ţótt sjálf greinargerđin međ umsókninni nái ekki máli hvađ lengd varđar frekar en fyrri daginn, ţá fćr Pétur Tryggvi ađ ţessu sinni starfslaun úr Listasjóđi í sex mánuđi.

  

30.12.2006 Pétur Tryggvi útnefndur bćjarlistamađur Ísafjarđarbćjar

 
mbl.is 506 sóttu um starfslaun listamanna
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Pétur Tryggvi útnefndur bćjarlistamađur Ísafjarđarbćjar

Silfursmiđurinn Pétur Tryggvi Hjálmarsson var í dag sćmdur nafnbótinni bćjarlistamađur Ísafjarđarbćjar og ber hann titilinn nćsta áriđ. Fráfarandi bćjarlistamađur er Elfar Logi Hannesson leikari og einleikjahöfundur. Fyrstur til ađ bera ţetta sćmdarheiti fyrir nokkrum árum var Jónas Tómasson tónskáld.

 

Áriđ sem er ađ kveđja hefur veriđ listamanninum Pétri Tryggva hagstćtt. Fyrir utan nýju nafnbótina ber ţar hćst sýningu í Krónborgarhöll á Helsingjaeyri í Danmörku í haust ásamt bestu silfurlistamönnum Danmerkur, en ţó einkum útkomu danskrar bókar um tuttugu bestu silfursmiđi 20. aldarinnar, en í ţeim hópi er Pétur Tryggvi.

 

Núna má segja ađ loksins sé Pétur Tryggvi vinur minn orđinn spámađur í sínu eigin föđurlandi, ţví ađ lengst af hefur upphefđ hans ađ mestu veriđ utan Íslands. Ţađ á sér vissar skýringar ađ hluta til, ţví ađ fyrir mörgum árum fluttist hann til Danmerkur og bjó ţar og starfađi ţangađ til hann fluttist heim á ćskustöđvarnar á Ísafirđi nćr aldahvörfunum. Reyndar skal ţess getiđ, ađ í upphafi listferils síns áriđ 1979 tók hann ţátt í verđlaunasamkeppni Félags íslenskra gullsmiđa og hlaut ţar fyrstu verđlaun. Sama ár hélt hann sína fyrstu sýningu í Bogasal Ţjóđminjasafnsins. Hér verđa ekki taldar ađrar viđurkenningar og verđlaun sem Pétur Tryggvi hefur hlotiđ, né heldur sýningar, en ţćr eru orđnar margar víđa um lönd síđasta aldarfjórđunginn. Samt má lauma ţví hér inn, ađ áriđ 2004 héldum viđ Pétur Tryggvi dálítiđ sérstćđa samsýningu í Edinborgarhúsinu á Ísafirđi, sem bar nafniđ Silfurljóđ. Efniviđurinn var silfur og gull hjá Pétri Tryggva en orđ hjá mér. Kirkjusilfur eftir Pétur Tryggva er í ýmsum kirkjum hérlendis, ţar á međal í Ţingvallakirkju og Vídalínskirkju í Garđabć.

 

Í byrjun ţessa árs varđ Pétur Tryggvi fimmtugur og var af ţví tilefni fjallađ um hann og list hans í helstu blöđum Danmerkur. Hér fyrir neđan fylgir til gamans úrklippa (pdf) úr Berlingske Tidende í tilefni fimmtugsafmćlisins.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband